En Kristur er kominn sem æðsti
prestur hinna komandi gæða. Hann gekk inn í gegnum hina
stærri og fullkomnari tjaldbúð, sem ekki er með
höndum gjörð, það er að segja er ekki af
þessari sköpun. Ekki fór hann með blóð
hafra og kálfa, heldur með eigið blóð, inn
í hið Heilaga í eitt skipti fyrir öll og
aflaði eilífrar lausnar.
(Heb
9. 11-12).
Vér megum nú,
bræður, fyrir Jesú blóð með
djörfung
ganga inn í hið HEILAGA, þangað sem hann
vígði okkur veginn, NÝJAN VEG og LIFANDI inn í
gegnum fortjaldið, það er að segja líkama
sinn. Vér höfum mikinn PREST yfir HÚSI GUÐS
(Heb 10.
19-20).
Eftir þetta mun ég aftur koma og endurreisa
hina föllnu tjaldbúð Davíðs. Ég mun
reisa hana úr rústum og gjöra hana upp aftur, svo
að mennirnir, sem eftir eru, leiti Drottins, allir
heiðingjarnir, sem nafn mitt hefur verið nefnt yfir, segir
Drottinn, sem gjörir þetta kunnugt frá EILÍFU.
(P 15. 16, 17).