THE SIBLINGS OF THE SACRED HEART

– Systkini hins Alhelga Hjarta –



„Hver er móðir mín, og hverjir eru bræður mínir?“ Og hann rétti út höndina yfir lærisveina sína og sagði: „Hér er móðir mín og bræður mínir. Hver sem gjörir vilja Föður míns, sem er á himnum, sá er bróðir minn, systir og móðir“ (Mt 12. 49, 50)

Ég nefni allar þær sálir sem snortnar hafa verið með áþreifanlegum hætti af elsku Drottins okkar Jesú Krists
The Siblings of the Sacred Heart (heitið er skammstafað sem SOSH. Skammstöfunin SOS er hið alþjóðlega neyðarkall og bókstafurinn „H“ skírskotar til hins Alhelga Hjarta Jesú). Slíkar sálir elska Jesú og hlýða því boðorðum hans: „Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau, hann er sá sem elskar mig. En sá sem elskar mig, mun elskaður verða af Föður mínum, og ég mun elska hann og birta honum sjálfan mig“ (sjá Jh 15. 21). Og Drottinn bætti við: „Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars“ (Jh 13. 34, 35).

Sú sál sem uppfyllir boðorð elskunnar uppfyllir öll önnur boðorð Drottins því að elskan er tvö æðstu boðorða hans: „Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?“ Hann svaraði honum: ,Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.‘ Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. Annað er þessu líkt: ,Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.‘ Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir“  (Mt  22. 36-40). Boðorð Drottins er eilíft líf, boðorð himnesks Föður hans:
„Og ég veit, að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og Faðirinn hefur sagt mér“  (Jh 12. 50).

Engin sköpuð vera hefur elskað Jesú eins heitt og hin blessaða Mey, Guðsmóðirin, sem gaf Drottni líf af sínu eigin lífi. Hún var fyrsti meðlimur kirkjunnar sem öðlaðist lífið eilífa vegna þess að hún laut boði Guðs Föður af fullkominni auðmýkt og hlýðni: „Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum“ (Lk 1. 38).  Þannig rættist hinn eilífi draumur Guðs sem hann bar í hjarta sínu „áður en heimurinn var grundvallaður“ (Ef 1. 4). Hið eilífa Orð var getið í skauti meyjarinnar og „lífið var ljós mannanna“ (Jh 1. 4). Þetta ljós skein í myrkrinu og myrkur erfðasyndarinnar leið frá og með þessari stundu undir lok í mannheimum hjá öllum þeim sem veita ljósinu viðtöku: „Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann“ (Jh 1. 9).

Sami leyndardómurinn og gerðist í lífi Maríu Guðsmóður endurtekur sig í sérhverri sál sem fylgir fordæmi hinnar blessuðu Meyjar, ef við játum syndir okkar og yfirsjónir og iðrumst gerða okkar. Þá glæðist náð Guðs í hjörtum okkar og hinn eilífi getnaður Orðsins á sér stað í okkar eigin lífi. Við verðum að mæðrum Jesú í okkar eigin lífi.

Innan hinnar guðdómlegu tilhögunar gegnir María Guðsmóðir einstæðu hlutverki eins og fjallað er um í Hugleiðingu 14 og Hugleiðingu 18 þar sem vikið er að henni sem fyrstu LIFANDI SÁTTMÁLSÖRK HINS NÝJA SÁTTMÁLA og rétt eins og Hebrearnir fylgdu sáttmálsörkinni eftir í eyðimörkinni fylgir kirkjan á eftir Maríu til hins fyrirheitna lands.

Á myndinni hér að neðan sjáum við sögu friðþægingar Drottins á fórnarhæð krossins líkt og í hnotskurn. Það er hið Alhelga Hjarta Jesú sem er uppsprettulind hins háheilaga blóðs. Í Gamla sáttmálanum var prestum Arons ekki heimilað að neyta blóðs fórnarinnar vegna þess að blóðið var tákn þess yfirskilvitlega lífs sem fyrirhugað var börnum hins Nýja sáttmála. Það er þetta yfirskilvitlega líf sem drýpur yfir hið Flekklausa Hjarta Maríu Guðsmóður og síðan til allra annarra mennskra hjartna til samræmis við það hversu opin þau eru gagnvart lífi náðarinnar. Þetta er hjartasláttur Guðs í samfélagi kirkjunnar og hjarta hennar: Drottins Jesú. Og eins og systir Elísabet af Þrenningunni orðaði það svo fagurlega: ÞAÐ ER EINUNGIS EIN HRÆRING Í HINU ALHELGA HJARTA JESÚ, AÐ UPPRÆTA SYNDINA OG LEIÐA SÁLIRNAR TIL SÍNS HIMNESKA FÖÐUR. Syndin er allt sem stríðir gegn þessari hræringu og sundrar samfélag mannshjartnanna við Guð Föður.







Hið nýja og yfirskilvitlega samfélag sem verður til á jörðu á Hvítasunnudag er samfélag bræðra og systra Jesú undir verndarhjúp Móður hans, hinnar blessuðu Meyjar, samfélag milljóna hjartna,  allra þeirra sem trúa á Jesú og skírast til nafns hans og jafnframt alla sem hafa góðan vilja, alls mannkynsins. Öllu mannkyninu er boðið að ganga í þetta samfélag, að verða að bræðrum og systrum Jesú í baráttunni við óvin alls lífs, Satan, og starfa saman að því að grundvalla Konungsríki hans á jörðu í sínu eigin lífi og samfélagi. Þetta felur í sér að við tökum Guðsmóðurina okkur til fyrirmyndar í auðmýkt hennar og flekkleysi og höfnum syndinni og leggjum grunninn að SIÐMENNINGU LJÓSS, LÍFS OG ELSKU á jörðinni.  Þetta er eitt og hið sama og að leita sífellt skjóls í TJALDBÚÐ LÍSINS. Tjaldbúð lífsins er andhverfa hinnar SVÖRTU TJALDBÚÐAR DAUÐANS og engin sál getur dvalið í báðum þessum tjaldbúðum samtímis.





Það er engin tilviljun að Biblían hefst og lýkur með konunni: „Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis“ (1M 3. 15). Það er María Guðsmóðir sem mun „merja höfuð“ höggorms dauðans sem hin nýja Eva. Þetta er sá sannleikur sem opinberaðist ungversku karmelsysturinni Erzebet (Elísabet) Szanto. Guðsmóðirin sagði við hana: „Logi náðarinnar sem ég færi þér úr Flekklausu Hjarta mínu verður að berast frá hjarta til hjarta. Þetta er það kraftaverk sem mun blinda Satan. Þetta er logi elsku og einingar og við munum slökkva eld með eldi: Eld hatursins með eldi elskunnar! Mér áskotnaðist þessi náð hjá himneskum Föður okkar sökum sára Sonar míns.“ Því bað Drottinn okkur að biðja á þennan veg:

Heil sért þú María, full náðar,
Drottinn er með þér,
blessuð sért þú á meðal kvenna
og blessaður sé ávöxtur lífs þíns, Jesú.
Heilaga María Guðsmóðir,
bið þú fyrir oss syndugum mönnum
og úthell náð loga elsku þinnar
yfir allt mannkynið,
nú og á dauðastundu vorri. [1].

Rit systur Elísabetar – Logi elsku hins Flekklausa Hjarta Maríu – er nú fyrirliggjandi á íslensku á Vefrit Karmels. Ritið hefur farið sigurför um heiminn og opnað augu fólks fyrir þeim ógnartökum sem nú geisa í hinum andlega heimi milli Satans og hinna himnesku tignarvætta Mikjáls erkiengils (Opb 12). Þetta er það sem Guðsmóðirin opinberaði okkur í Fatíma árið 1917, að við lifum á endatímanum.

[1]. Imprimatur: Sóknardómstóllinn Szekesfehervar, Ungverjalandi, 26. september 1078/1404. Nihil obstat: Dr. Laszlo Iranyi, 31. maí 1984. En hefur hið heilaga Sæti ekki tekið afstöðu til þessarar breytingar á Maríubæninni, en hinum trúuðu er heimilt að biðja hana með þessum hætti.

Efri myndin af hinu yfirskilvitlega hjartasamfélagi er komin frá Trúboðsstöð Salisíana í Pasay á Filippseyjunum.

Myndin af Loga elsku hins Flekklausa Hjarta Maríu er gerð af listamanninum Erwin Schoppl í Regensburg í Austurríki (1977).